Skip to main content

UT-Ráðgjöf

Sérfræðiráðgjöf í upplýsinga og tæknimálum

Heim  Fyrirtækið  Office 365  Starfsmenn  Hafa Samband  Member Login   

Office 365 - Byltingakennd lausn frá Microsoft
Skrifstofan í skýinu

 

Ný lausn frá Microsoft sem UT Ráðgjöf býður upp á og gæti verið til mikilla bóta fyrir rekstur og notagildi upplýsingatæknikerfisins hjá sveitarfélaginu. Lausn Microsoft, Office 365, hefur verið kölluð „skrifstofan í skýinu“, og býður upp á möguleika til að nálgast gögn, forrit og tölvupóst hvaðan sem er. Kerfið samanstendur af Exchange 2010 tölvupóstkerfi ásamt skjalastjórnunarkerfinu Sharepoint 2010 og samskiptakerfinu Lync Online.

Office 365, sem er gjaldfrjálst fram í miðjan júní næstkomandi, er í raun fullkomnasta lausn Microsoft á sviði hópvinnulausna. Kerfið er hannað þannig að viðkomandi þarf ekki að kaupa neinn nýjan vélbúnað eða leggja í neinn stofnkostnað og aðeins er greitt fyrir þá þætti þjónustunnar sem notandinn þarf á að halda. Í kerfinu er hægt að vinna með öruggum hætti, hvort heldur sem notandinn er nettengdur eða ekki.

Í Sharepoint er hægt að vista skjöl miðlægt og deila þeim á milli notenda. Lync samskiptakerfið hefur marga kosti þar sem það getur til dæmis verið sjálfstætt símkerfi, en einnig má nota það t.d. til að varpa PowerPoint skyggnum milli tölva á fjarfundum.

Gjaldtaka, þegar að henni kemur, er með þeim hætti að einungis er rukkað fast mánaðargjald fyrir hvern notanda hjá viðkomandi fyrirtæki eða stofnun og er engin skuldbinding varðandi lágmarksfjölda á leyfum hjá hverjum aðila. Einnig má geta þess að skýjalausn Microsoft er einnig í boði gjaldfrjálst fyrir skóla.

Eitt af leyfunum í Office 365, kallast E3 innifalið í því fyrir einn notanda er að hann getur sett upp Office 2010 Professional Plus á allt að fimm mismunandi tölvur. Sumum gæti dugað K1 leyfið en þessi aðgangur er helst hugsaður fyrir þá starfsmenn sem eyða minna en 10% af sínum tíma fyrir framan tölvu. Hvert fyrirtæki eða stofnun getur svo keypt mismunandi leyfi eftir þörfum hvers notanda.

Það sem við erum að bjóða er ókeypis reynslutími með aðgang að kerfinu fram í miðjan júní næstkomandi. Því fylgir persónuleg þjónusta sem UT Ráðgjöf innir af hendi í samvinnu við ykkar tölvufólk, eða þeim sem þjónusta ykkar tölvukerfi og við aðstoðum sjálfir við að flytja gögn úr núverandi kerfi í nýtt kerfi. Við erum einnig tilbúnir til að kynna ykkur kerfið ítarlega og svara öllum þeim spurningum sem upp kunna að koma, er varða t.d. leyfismál og val í þeim efnum.

Ég er mjög sannfærður um ágæti þessara lausnar og er viss um að í fyrstu muni lítil og meðalstór fyrirtæki og stofnanir alltaf velja þessa lausn, enda er hún umtalsvert ódýrari og þægilegri en að þurfa að hýsa samskonar kerfi sjálf.

 

Agnar Guðmundsson